mánudagur, 30. júní 2008

Mexíkó

Ég hef ákveðið að legga land undir fót og halda til Mexíkó í ár sem skiptinemi á vegum Rotary. Hér mun ég blogga eftir bestu getu. Ég flýg þann 7. ágúst.
Ég mun búa í Veracruz hjá Rosario og Tono. Þetta verður alveg þvílík breyting, ég fer úr 6 manna fjölskyldu þar sem ég er elstur yfir í fjölskyldu þar sem elstu synirnir eru fluttir að heiman og yngsti verður í Þýskalandi. Þannig að ég verð einkabarn með miklu eldri foreldra en ég hef vanist :D
Jæja, ég þarf víst að drífa mig í vinnuna.